Samvinna um aðgerðir

Fulltrúar grasrótarhópa og aðgerðasinnar eru boðaðir til fundar í Húsinu,
Höfðatúni 12, miðvikudaginn 7. júní kl. 20.00

Fundarefnið er samvinna um aðgerðir á næstunni. Sérstök áhersla verður lögð
á aðgerðir sem miða að því að stöðva framgang efnahagsáætlunar AGS og
stjórnvalda. Í bakgarði stjórnarráðsins heldur skuggastjórn AGS til og
stjórnar öllu sem hún [...]

aLÞiNGi gÖtUNNAr á 1. maí

aLÞiNGi gÖtUNNAr hvetur alla félaga í hópnum til að taka þátt í hefðbundnum hátíðarhöldum laugardaginn 1. maí næstkomandi.
Þeir sem geta eru beðnir að mæta í Húsið , Höfðatúni 12, ekki seinna en kl.13. Þaðan verður farið með kröfuspjöld og skjaldborgina okkar niður á Hlemm. Kröfugangan leggur af stað þaðan kl. 13:30.
Við [...]

Ræða Helgu Þórðardóttur á Austurvelli 24. apríl 2010

Kæru þingmenn götunnar,
Vonandi munu laukarnir  hér á Austurvelli bera tilætlaðan ávöxt!
Örfáir útrásar og bankadólgar ásamt spilltum stórnmálamönnum hafa komið okkur á kaldan klakann.  Þessir menn unnu myrkraverk sín í reykfylltum bakherbergjum.
Þetta höfum við fengið staðfest í Rannsóknarskýrslu Alþingis. Þetta létum við gerast vegna þessa að því var haldið að okkur að hér væri allt best [...]

Ræða Sólveigar Jónsdóttur á Austurvelli 24. apríl 2010

Kæru félagar!
Þegar Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hafði lokið sér af í suð-austur Asíu í kjölfar  fjármálakreppunar þar,  stóð vart steinn yfir steini. Tugir miljóna voru án atvinnu,  barnavændi hafði aukist gríðarlega,  og blessuð millistéttin, sem flestir þrá að tilheyra hafði nær þurkast út.  Sumir töluðu um skipulagða eymd, planned misery.
En það veltust ekki allir um í eymd, öðru [...]

Útifundur 24. apríl á Austurvelli

aLÞiNGi gÖtUNNAr kemur saman á Austurvelli laugardaginn 24. apríl kl. 15:00.
Dagskrá:

Solla í Attac heldur ræðu
Helga Þórðar flytur ræðu
Dadda fundarstjóri lokar fundinum með ræðu í tilefni þess að þetta er síðasti fundur Alþingi götunnar í bili.

Thorvaldsens bar býður fundargestum til afnota af góðum sal í kjölfar fundar [...]

Ræða Hólmsteins Brekkan á Austurvelli 17. apríl 2010

,,Ef maður vill stela þjóðfélagi, þá verður maður að gera það samkvæmt lögum; og helst hafa tekið þátt í því að setja lögin sjálfur.”  Þetta eru orð Halldórs Laxness frá 1965 úr Atómstöðinni.
Nú höfum við fengið að sjá skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis sem sýnir nákvæmlega þetta. Þeir sem stálu þjóðfélaginu settu einnig lögin. Þau vissu það [...]

Ræða Páls Heiðars á Austurvelli 17. apríl 2010

Ég er ekki hérna vegna þess að ég sé með rassgatið fullt af lausnum…
Ég er ekki hérna vegna þess að ég vilji stjórnina í burt og nýtt fólk að kjötkötlunum….
Ég er enginn stjórnvitringur með úrræði á hverjum fingri,ég er ósköp venjulegur sjómaður sem ætlaði aldrei að taka þátt í þjóðmálum og aldrei að halda ræðu,en [...]

Hamfaraviðbrögð. Ræða Gísla Tryggvasonar á Austurvelli 17. apríl 2010

Við munum öll ræðuna sem þáverandi forsætisráðherra hélt fyrir hálfu öðru ári. Áður en hann bað Guð að blessa Ísland líkti hann tilefni neyðarlaganna, sem sett voru í flýti 6. október 2008, við efnahagslegar hamfarir.
En voru viðbrögðin í kjölfarið í samræmi við viðbrögð við náttúruhamförum?
Kannski fyrir kerfið og kröfuhafa. En hvað með neytendur?
Nú í sömu viku og [...]

Þetta er ekki mér að kenna. Ræða Jakobínu Ólafsdóttur á Austurvelli 17. apríl 2010

Þetta er ekki mér að kenna. Ég ber ekki ábygð. Ég vissi ekkert. Það var ekki talað við mig. Ég fattaði ekki neitt. Enginn hlustaði á mig. Þetta eru skilaboð stjórnmála- og embættismanna sem verja gerræðislega hegðun og vanhæfni í aðdraganda hrunsins.
Formaður Sjálfstæðisflokksins , flæktur í vafninga fortíðar,  kemur því á framfæri að forysta Sjálfstæðisflokksins [...]

Útifundur 17. apríl á Austurvelli

aLÞiNGi gÖtUNNAr kemur saman á Austurvelli laugardaginn 17. apríl kl. 15:00.
Dagskrá:

Ellen Kristjáns opnar með söng
Hólmsteinn Brekkan tekur verðtrygginguna fyrir
Jakobína mun fjalla um Skýrsluna stóru
Gísli Tryggvason talmsaður neytenda mun fjalla um dráttavexti og álíka mál
Fundi slitið með ályktun fundarstjóra

Baráttuvaffla með rjómalagðri svartri skýrslu er í boði á 600 kr. á Café Rót fyrir þá sem hafa [...]